7.2.2009 | 10:31
KAUPLEIGUFÖT
Einu sinni var hann Guðjón byggingameistari alveg kominn á rassgatið. Þá gerði hann Reykjavíkurborg tilboð í að byggja fyrir borgina heljarstórt hús. Til að bjarga lausafjárstöðunni hafði hann bara uppsteypuna dýra en innréttingarnar billegar. Svoleiðis fékk hann fullt af peningum í reksturinn. Svo fór hann að byggja verslunarmiðstöð, þegar hún var tilbúin voru allir aurarnir búnir og hann átti engin góð föt til að vera í við vígsluna. Guðjón fór þá bara til Sævars Karls og keypti hjá honum flott föt á kaupleigu. Guðjón er af þekktri ætt fjármálamanna. Menn eins og Guðjón þarf að virkja núna.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.